„Ég fór þarna út til að taka þátt í mínu fyrsta heimsmeistaramóti. Það gekk ekkert allt of vel en ég lærði helling,“ segir Drífa Ríkarðsdóttir, kraftlyftingakona frá Selfossi, í samtali við Morgunblaðið, nýsnúin heim af…
![Sorfið til stáls Drífa er keppniskona í kraftlyftingum og æfir í skólastofu í Grímsey en þar er engin líkamsræktarstöð.](/myndir/gagnasafn/2024/07/11/fa674c58-ad82-4c34-a168-e5dd306b5fa6.jpg)
Sorfið til stáls Drífa er keppniskona í kraftlyftingum og æfir í skólastofu í Grímsey en þar er engin líkamsræktarstöð.
Viðtal
Atli Steinn Guðmundsson
atlisteinn@mbl.is
„Ég fór þarna út til að taka þátt í mínu fyrsta heimsmeistaramóti. Það gekk ekkert allt of vel en ég lærði helling,“ segir Drífa Ríkarðsdóttir, kraftlyftingakona frá Selfossi, í samtali við Morgunblaðið, nýsnúin heim af heimsmeistaramótinu í klassískum kraftlyftingum í Litáen þegar þetta samtal á sér stað.
Heim? Vissulega er Ísland jú alltaf heim í augum þeirra sona og dætra þjóðarinnar sem langförul leggja sérhvert land undir fót, svo vitnað sé til kveðskapar sjálfs Klettafjallaskáldsins. Drífa er hins vegar ekki komin heim á Suðurlandið í hinn ört vaxandi höfuðstað landshlutans – Selfoss.
Öðru nær. Hún hraðaði sér heim frá Litáen að heimsmeistaramótinu
...