![Í leit að ást Vild kærlighed eru sýndir á DR.](/myndir/gagnasafn/2024/07/11/63869dcd-63ff-4712-b203-022ce50b0c0a.jpg)
Snædís Björnsdóttir
Ég horfi nánast eingöngu á bandarískt og breskt raunveruleikasjónvarp, og það finnst mér ekki alveg nógu gott. Þegar góð samstarfskona mældi með dönsku raunveruleikaþáttunum Vild kærlighed eða Villt ást sem sýndir eru á DR beið ég því ekki boðanna heldur fór heim eftir vinnu og hámhorfði á þá. Þættirnir gerast í sænskum skógi og segja frá ástarleit ungra Dana á þrítugsaldrinum. Þau eru pöruð saman í upphafi og sigla síðan tvö og tvö saman á heimagerðum timburfleka niður ána í skóginum á milli þess sem þau hitta restina af hópnum á glæsitjaldsvæðum („glamping“). Umhverfið er fallegt og það er skandinavískur rómans yfir myndatökunni, ungu Danirnir klæðast mörg hundruð þúsund króna útivistarfötum og enginn vogar sér að móðga neinn. Í staðinn fyrir slúður og drama fá áhorfendurnir
...