![Ákærður Alec Baldwin hefur verið ákærður fyrir manndráp af gáleysi. Tæp þrjú ár eru liðin frá því slys varð á tökustað kvikmyndarinnar Rust.](/myndir/gagnasafn/2024/07/11/e89035c6-2428-4206-8828-356f0b4ae803.jpg)
Réttarhöld yfir bandaríska leikaranum Alec Baldwin hófust í vikunni. Baldwin er sakaður um manndráp af gáleysi á tökustað kvikmyndarinnar Rust í október 2021. Réttarhöldin fara fram í Nýju-Mexíkó, segir í frétt AFP.
Úkraínski tökumaðurinn Halyna Hutchins lést þegar Baldwin beindi leikmunabyssu að henni á meðan á æfingu stóð og alvöruskot hljóp úr byssunni. Þá særðist leikstjóri myndarinnar.
Baldwin hefur lýst yfir sakleysi sínu og segist hvorki hafa vitað að byssan hafi verið hlaðin né hafa tekið í gikkinn. Hann á yfir höfði sér 18 mánaða fangelsi verði hann fundinn sekur. Vopnasérfræðingurinn, Hannah Gutierrez, hefur nú þegar verið dæmd í 18 mánaða fangelsi.
Saksóknarinn Kari Morrissey er sögð munu halda því fram að Baldwin hafi brotið öryggisreglur og sýnt gáleysi á tökustað.