Margrét Sjöfn Egilsdóttir fæddist 13. júlí 1940 í Reykjavík. Hún lést á Sólvangi Hafnarfirði 29. júní 2024.

Foreldrar hennar voru Egill Ástbjörnsson, f. 2. júní 1915, d. 12. janúar 1991, og Ásta María Stefánsdóttir, f. 1. júní 1917, d. 10. júní 1993. Systkini Margrétar eru: Kristín Ásta, f. 1936, Ástbjörn, f. 1942, Stefán, f. 1944, Gunnar f. 1954. Margrét ólst upp í Reykjavík.

Þann 2. ágúst 1958 giftist Margrét Kristni Jóel Magnússyni, f. 28. júní 1940, d. 20. júlí 1990. Þau héldu alla tíð heimili í Hafnarfirði. Margrét og Kristinn eignuðust fimm börn, 13 barnabörn og 13 barnabarnabörn. Börn Margrétar og Kristins eru: Magnús S., f. 1958. Hann á tvö börn, tvö barnabörn, tvö stjúpbörn og fjögur barnabörn. Viðar, f. 1960, kvæntur Sigríði Hjördísi Baldursdóttir. Þau eiga tvö börn og tvö barnabörn. Ásta María, f. 1961, gift Steinþóri V.

...