Segist einhver nákominn vera að hugsa um að skella sér til Rússlands er hægt að mæla gegn því: mæla á móti því, og leggjast gegn því: segjast vera andsnúinn því – eða hreinlega berjast gegn því. Tilgangslaust er „að vara gegn…

Segist einhver nákominn vera að hugsa um að skella sér til Rússlands er hægt að mæla gegn því: mæla á móti því, og leggjast gegn því: segjast vera andsnúinn því – eða hreinlega berjast gegn því. Tilgangslaust er „að vara gegn því“. Vilji maður nota þá sögn er best að vara við því eða taka manninum vara fyrir því.