Þýskir fjölmiðlar eru harðorðir í garð þýska kvennalandsliðsins í knattspyrnu eftir skellinn sem það fékk gegn Íslandi, 3:0, á Laugardalsvellinum í gærkvöld. „Jónsdóttir og félagar þökkuðu kærlega fyrir góð boð. Hver mistökin á fætur öðrum. Þýskaland gefur Íslandi farmiða á EM,“ sagði íþróttafjölmiðillinn Kicker í upphafsorðum sínum um leikinn. Þetta var annað tap Þjóðverja gegn Íslandi í 20 viðureignum þjóðanna og stærsta tap þýska liðsins í sex ár.