![Fiðluleikarinn „Túlkun hennar var ofboðlega músíkölsk,“ segir rýnir um tónleika Elfu Rúnar í Skálholti en þar flutti hún verk eftir Matteis, Westhoff og Bach.](/myndir/gagnasafn/2024/07/13/74ea4021-8596-4923-8b7c-9aec58007feb.jpg)
Tónlist
Magnús Lyngdal Magnússon
Sólin skein bæði úti og inni í Skálholtskirkju mánudaginn 8. júlí síðastliðinn þegar fiðluleikarinn Elfa Rún Kristinsdóttir lék einleiksverk á Sumartónleikum í Skálholti eftir þá Matteis, Westhoff og Bach. Hátíðin hefur verið starfandi frá árinu 1975. Í tengslum við hátíðina hefur því verið staðið fyrir skipulögðu tónleikahaldi í Skálholtskirkju á hverju sumri í rétt tæpa hálfa öld. Hátíðin er sú elsta og jafnframt stærsta sinnar tegundar á landinu.
Elfa Rún vakti alþjóðlega athygli þegar hún vann til verðlauna (þar með talin aðalverðlaunin) á alþjóðlegu Bach-keppninni í Leipzig árið 2006. Síðan þá hefur hún verið mikilvirk í flutningi bæði einleikstónlistar, kammertónlistar og í að leiða stærri hljómsveitir. Hún leikur
...