Sigríður Hannesdóttir fæddist 13. mars 1932. Hún lést 28. júní 2024.

Útför Sigríðar fór fram 8. júlí 2024.

Þú áttir söngva og sól í hjarta

er signdi og fágaði viljans stál.

Þeir þurftu ekki um kulda að kvarta,

er kynni höfðu af þinni sál.

(Grétar Fells)

Valkyrjan, gleðigjafinn, leikkonan og skemmtikrafturinn Sigríður Hannesdóttir er fallin frá. Við erum ekki mörg eftir af okkar hópi en Didda og Ottó voru mér og minni konu, Jónu Gróu, samferða í lífsins leik og vinskapur til margra ára. Það var ávallt gaman og mikið hlegið og átti Didda upphafið í öllum leikjunum og gleðinni.

...