KA hafði betur gegn Vestra, 2:0, á útivelli í miklum fallslag í Bestu deild karla í fótbolta á Ísafirði í gær. Með sigrinum fór KA úr tíunda sæti og upp í það áttunda, þar sem liðið er með 15 stig og nú fjórum stigum fyrir ofan fallsæti. Vestri er enn í ellefta og næstneðsta sæti, þremur stigum frá HK og öruggu sæti. Hallgrímur Mar Steingrímsson skoraði bæði mörk KA. » 26