Við stundum það mjög að gera grín hvert að öðru. Þá er best að halda sig við málvenju til að grínið virki. Grín má gera en að „draga“ það dregur úr því mátt. Það er hins vegar upplagt við dár, sem þýðir háð eða skop

Við stundum það mjög að gera grín hvert að öðru. Þá er best að halda sig við málvenju til að grínið virki. Grín má gera en að „draga“ það dregur úr því mátt. Það er hins vegar upplagt við dár, sem þýðir háð eða skop. Að draga dár að e-m er að skopast að e-m – eða hæðast; grínið okkar er ekki alltaf góðlátlegt.