Axel Sigurgeirsson fæddist 7. maí 1949. Hann lést 27. júní 2024.

Útför hans fór fram 11. júlí 2024.

Árið er 1960 um jól. Ég var að verða tíu ára þegar fjölskyldan mín, Grettir Björnsson pabbi, Erna Geirsdóttir mamma, Maggí og Regína systur og Grettir bróðir erum að flytjast frá Kanada til Íslands.

Heimsmyndin í Kanada einkenndist þá hjá mér aðallega í kringum kúrekann og sjónvarpsstjörnuna Roy Rogers og hestinn hans Trigger. Þá um sumarið 1961 er ég inntur eftir því hvort ég væri ekki til í að fara í sveit norður í land, nánar tekið að Bjargi í Miðfirði, fæðingarstað pabba. Ég hélt nú aldeilis enda bjó ég svo vel að eiga cowboy-skyrtu og -stígvél í anda goðsins Roy Rogers. Í sveitinni eru örugglega hestar og kúrekar. En við tók aðallega fjós og beljur og kindur og svoleiðis. Er við Axel

...