![Flugvélar Veðrið var ekki upp á marga fiska á flughátíðinni Allt sem flýgur á Hellu um helgina. Flugvélar voru á staðnum þrátt fyrir flugleysi.](/myndir/gagnasafn/2024/07/15/74b91139-53a5-43f0-962e-b7f616c4ea8a.jpg)
„Veðrið var ekki alveg með okkur í liði þetta skiptið, við héldum í vonina lengi um að rætast myndi úr því en svo varð ekki,“ segir Matthías Sveinbjörnsson, forseti Flugmálafélags Íslands, um flughátíðina Allt sem flýgur sem haldin var á Hellu um helgina.
Hann segir stemninguna hafa verið frábæra og allir hafi verið í góðu skapi þrátt fyrir vont veður og flugleysi.
„Miðað við það hvernig veðrið var og hve lítið var flogið var ég gáttaður á því hversu margir mættu á svæðið,“ segir Matthías, en á annað hundrað manns sóttu hátíðina í ár. Hann kveðst aldrei hafa upplifað það að veðrið sé slæmt alla dagana sem hátíðin stendur yfir. Segir hann lítið hafa verið flogið. „Við vorum með grillhátíð og kvöldvöku á laugardagskvöldinu, það skemmtu sér allir frábærlega vel sem
...