Hans-Uwe Vollertsen fæddist 14. október 1950 í bænum Slésvík í Norður-Þýskalandi. Hann lést á krabbameinsdeild Landspítalans við Hringbraut 2. júlí 2024.

Foreldrar hans voru hjónin Ida Catharina Margrethe Vollertsen (fædd Jürgensen) verslunarkona, f. 1924, d. 2020, og Heinrich Peter Franz Vollertsen kaupmaður, f. 1920, d. 2008. Systir Hans-Uwe er Birgit Wieckhof, f. 1955. Dætur hennar eru Gabriele Peutz og Franzisca Esser.

Hans-Uwe kvæntist 10. júlí 1982 Ragnheiði Helgu Þórarinsdóttur þjóðfræðingi og deildarstjóra í mennta- og menningarmálaráðuneytinu, f. 1952 á Eiðum, dóttur hjónanna Þórarins Þórarinssonar skólastjóra, f. 1904, d. 1985, og konu hans Sigrúnar Ingibjargar Sigurþórsdóttur, f. 1919, d. 2006. Börn þeirra eru 1) Helga Vollertsen safnafræðingur, f. 20. október 1983, gift Þóri Jóhannessyni kranastjóra, f. 24. september 1977. Börn

...