Kvikmyndin Snerting, eftir Baltasar Kormák, sem byggð er á skáldsögu Ólafs Jóhanns Ólafssonar, hefur hlotið góða dóma í Bandaríkjunum en sýningar á myndinni hófust þar síðastliðinn föstudag
![Leikstjórinn Snerting eftir Baltasar hefur vakið athygli víða um heim.](/myndir/gagnasafn/2024/07/16/f3736a38-def1-4a39-8ebf-7b0d9b5c9576.jpg)
Leikstjórinn Snerting eftir Baltasar hefur vakið athygli víða um heim.
— Morgunblaðið/Arnþór Birkisson
Kvikmyndin Snerting, eftir Baltasar Kormák, sem byggð er á skáldsögu Ólafs Jóhanns Ólafssonar, hefur hlotið góða dóma í Bandaríkjunum en sýningar á myndinni hófust þar síðastliðinn föstudag. Fær myndin 95% í einkunn á vefsíðunni Rotten Tomatoes sem dregur saman umsagnir gagnrýnenda. Miðlar á borð við New York Times, Wall Street Journal, Time, Variety, Hollywood Reporter, IndieWire, Mashable, Screen Daily og Roger Ebert eru meðal þeirra sem birt hafa rýni um myndina, að því er fram kemur í tilkynningu frá aðstandendum myndarinnar. Þar er m.a. haft eftir vefmiðlinum Movieweb að Snerting sé besta mynd sem sýnd hafi verið í kvikmyndahúsum
...