![Akstursíþróttadeild Red Bull svipti hulunni af nýjum ofursportbíl.](/myndir/gagnasafn/2024/07/16/006583c1-009b-4486-bf09-6986961f6a0f.jpg)
Akstursíþróttadeild Red Bull svipti hulunni af nýjum ofursportbíl.
Breskir bílaáhugamenn streymdu til Vestur-Sussex um helgina til að taka þátt í árlegu bílahátíðinni Goodwood Festival of Speed.
Viðburðurinn hóf göngu sína árið 1993 og er von á allt að 150.000 gestum á hátíðina sem í ár spannar fjóra daga. Dagskráin samanstendur af bílasýningum, bílauppboði og alls kyns keppnisviðburðum, og nota framleiðendur viðburðinn oft til að frumsýna ný ökutæki og tilraunafarartæki.
Hápunktur hátíðarinnar er tímataka á þröngum og hlykkjóttum vegi, samtals 1.890 metra leið, en ökuþórar á farartækjum af öllum mögulegum gerðum spreyta sig á akstursleiðinni, þar á meðal fornbílum sem sumir eru meira en aldargamlir. ai@mbl.is