Grikkland Sverrir Ingi Ingason er á leið til Panathinaikos í Grikklandi.
Grikkland Sverrir Ingi Ingason er á leið til Panathinaikos í Grikklandi. — Ljósmynd/Alex Nicodim

Landsliðsmaðurinn Sverrir Ingi Ingason hefur skrifað undir fjögurra ára samning við gríska félagið Panathinaikos. Hann kemur til félagsins frá Midtjylland í Danmörku. Sverrir lék aðeins eitt tímabil með Midtjylland og var í lykilhlutverki hjá liðinu er það varð danskur meistari. Hörður Björgvin Magnússon er leikmaður Panathinaikos og hefur verið þar frá 2022. Sverrir þekkir grískan fótbolta vel en hann var leikmaður PAOK frá 2019 til 2023.