![Trump Rannsókn á banatilræðinu á laugardag stendur nú sem hæst.](/myndir/gagnasafn/2024/07/17/dc4a13bb-f6bd-41e0-9d9e-3aee89b67e07.jpg)
Bandaríska alríkislögreglan rannsakaði í gær sérstaklega aðstæður á vettvangi þar sem reynt var að myrða Donald Trump forsetaframbjóðanda Repúblikanaflokksins á laugardaginn. Könnuðu þeir sérstaklega vöruhúsið þar sem tilræðismaðurinn Thomas Matthew Crooks kom sér fyrir á þakinu.
Viðbrögð lögreglunnar, sem og öryggisþjónustu Bandaríkjaforseta (e. Secret Service) eru í brennidepli rannsóknarinnar, en Kimberly Cheatle yfirmaður þjónustunnar sagði í gær að vöruhúsið hefði verið sett í „ytri varnarhring“, en þar átti staðarlögreglan að hafa yfirumsjón með öryggismálum. Voru lögreglumenn inni í húsinu þegar Crooks hóf skothríðina.
Fjölmiðlar vestanhafs fjölluðu í gær sérstaklega um tímann sem leið frá því að sjónarvottar gerðu lögreglu viðvart um að Crooks væri á þakinu með riffil og þangað til hann skaut að Trump, en
...