Sigríður Helga Sverrisdóttir

sigridurh@mbl.is

Nýtt bókunarkerfi í Landmannalaugum hefur reynst vel það sem af er sumri og flestir sem koma eru búnir að bóka fyrir fram. Bókunarkerfið var tekið upp til að stýra betur umferð um svæðið.

Gestir sem koma akandi inn í Landmannalaugar á milli kl. 8 og 15 þurfa að bóka bílastæði fyrir fram og greiða þjónustugjald áður en þeir koma. Kerfið var tekið í gagnið 20. júní og verður notað til 15. september.

Annars er svæðið allt opið fyrir umferð allan sólarhringinn og er hægt að koma og leggja

...