Gareth Southgate er hættur störfum sem þjálfari enska karlalandsliðsins í knattspyrnu en hann tilkynnti ákvörðun sína í gærmorgun. Hann hefur stýrt liðinu frá árinu 2016 og það hefur leikið tvo úrslitaleiki í röð á EM undir hans stjórn en tapað í bæði skiptin

Gareth Southgate er hættur störfum sem þjálfari enska karlalandsliðsins í knattspyrnu en hann tilkynnti ákvörðun sína í gærmorgun. Hann hefur stýrt liðinu frá árinu 2016 og það hefur leikið tvo úrslitaleiki í röð á EM undir hans stjórn en tapað í bæði skiptin.

Sveinbjörn Pétursson handknattleiksmarkvörður hefur samið við ísraelska félagið Hapoel Ashdod til eins árs. Hann hefur varið mark Aue í Þýskalandi undanfarin fjögur ár og verður fyrsti Íslendingurinn til að leika með ísraelsku handboltaliði.

Knattspyrnumaðurinn Kristall Máni Ingason hefur framlengt samning sinn við Sönderjyske í Danmörku til ársins 2027. Kristall skoraði átta mörk í 28 leikjum þegar Sönderjyske tryggði sér sæti í úrvalsdeildinni á síðasta tímabili.

Karlalið HK í

...