![Sigur Landsliðskonurnar fagna.](/myndir/gagnasafn/2024/07/17/d6ab4ffd-4782-4cb4-bfc8-37a899e1fb83.jpg)
Sigur Landsliðskonurnar fagna.
— Ljósmynd/Alex Nicodim
Sveindís Jane Jónsdóttir tryggði Íslandi sigur gegn Póllandi í Sosnowiec, 1:0, í lokaumferð undankeppni Evrópumóts kvenna í fótbolta í gær. Ísland fékk 13 stig í öðru sæti, tveimur stigum á eftir Þýskalandi, og verður líklega í öðrum styrkleikaflokki þegar dregið verður í riðla EM. » 23