![Verð hækkar á nautakjöti.](/myndir/gagnasafn/2024/07/17/b2d44063-8d4f-4dc2-ab5d-34585b8f2979.jpg)
Verð hækkar á nautakjöti.
Sláturfélag Suðurlands (SS) hefur ákveðið að hækka afurðaverð á nautgripakjöti um allt að 8%. Steinþór Skúlason forstjóri SS sagði í samtali við mbl.is að verðhækkunin til bænda væri nauðsynleg vegna sífellt aukins framleiðslukostnaðar og verðbólgu í landinu.
Afurðaverð hækkar um 8% fyrir kýr, naut og alikálfa, en aðrir flokkar hækka um 4%. Að auki mun SS greiða 8% viðbót á afurðaverð nautgripa, í samræmi við stefnu félagsins um að tryggja samkeppnishæft verð og skila hluta af rekstrarhagnaði til bænda.