Eignabyggð er að ljúka uppbyggingu á þremur húsum í Borgahellu 29-33 í Hafnarfirði.
Eignabyggð er að ljúka uppbyggingu á þremur húsum í Borgahellu 29-33 í Hafnarfirði. — Ljósmynd/Eignabyggð

Brynjólfur Smári Þorkelsson, framkvæmdastjóri og annar tveggja eigenda Eignabyggðar, segir fyrirtækið aldrei hafa haft jafn mörg verkefni vegna uppbyggingar á atvinnuhúsnæði og nú. Hefur fyrirtækið byggt tugi þúsunda fermetra af atvinnuhúsnæði á höfuðborgarsvæðinu og víðar.

„Við erum fullbókaðir út þetta ár og næsta ár. Ég er þannig með mörg verkefni á borðinu sem ég þarf að reikna út. Ég hef aldrei verið með svona mörg verkefni í körfunni,“ segir Brynjólfur Smári um stöðuna.

Má út frá því ætla að stjórnendur fyrirtækja séu bjartsýnir á framtíðina þrátt fyrir að það sé smá mótvindur núna?

„Já. Ég myndi segja það,“ segir Brynjólfur en Eignabyggð hefur selt fasteignafélaginu Kaldalóni þrjár byggingar í Borgahellu 29-33 í Hafnarfirði.

...