Pétur Þór Gunnarsson fæddist í Vestmannaeyjum þann 12. september 1958. Hann lést á Grund þann 28. júní 2024 eftir erfið veikindi.

Móðir Péturs er Ásta Guðbjörg Þórarinsdóttir, f. 1938, eiginmaður hennar er Guðmundur Karlsson, f. 1936. Faðir Péturs er Gunnar Rúnar Pétursson (1938-2017).

Eiginkona Péturs er Erna Flygenring, f. 9. september 1958. Foreldrar Ernu eru Margrét Dagbjört Bjarnadóttir (1931-2014) og Kristján Ágúst Flygenring (1927- 2011).

Börn Ernu og Péturs eru: 1) Margrét Dagbjört, f. 1988, eiginmaður hennar er Jóhann Gísli Jóhannesson, f. 1986. Synir þeirra eru: Rúrik Pétur, f. 2012, Emil Kári, f. 2017, og Máni Hrafn, f. 2022. 2) Berglind Drífa, f. 1990, kærasti hennar er Kári Viðarsson, f. 1984. Dóttir Berglindar og Dimitris Sklias er Erna Olympía, f. 2020. 3) Kristján Ágúst, f.

...