„Það styttist bráðum í að það verði uppselt á böllin, bæði á föstudag og laugardag,“ segir Viktor Freyr Elísson, stofnandi og framkvæmdastjóri Sápuboltans á Ólafsfirði. Nefnir hann að 56 lið keppi í sápubolta um helgina og að 330…
![Froða Á Sápuboltanum er ekki spilað á gervigrasi, heldur á velli þöktum sleipri sápu og froðu.](/myndir/gagnasafn/2024/07/18/805e5b18-3eca-4baf-8276-53a6d6bb6391.jpg)
Froða Á Sápuboltanum er ekki spilað á gervigrasi, heldur á velli þöktum sleipri sápu og froðu.
„Það styttist bráðum í að það verði uppselt á böllin, bæði á föstudag og laugardag,“ segir Viktor Freyr Elísson, stofnandi og framkvæmdastjóri Sápuboltans á Ólafsfirði. Nefnir hann að 56 lið keppi í sápubolta um helgina og að 330 keppendur séu skráðir til leiks.„Við gerum ráð fyrir að þetta verði samt alveg 350 keppendur,“ bætir hann þó við.
Kveðst hann eiga von á að hátt í þúsund gestir sæki Ólafsfjörð um helgina vegna hátíðarhaldanna.
Allir fúsir að hjálpa til
Viktor segir að undanfarin ár hafi í grunninn fimm manns unnið að skipulagningu hátíðarhaldanna en í ár hafi tvær dömur bæst í hópinn. „En svo fáum við náttúrulega ótrúlega mikla hjálp,“ segir hann og tekur sem dæmi að Tandur útvegi alla sápu sem þekur leikvellina.
„Það er líka
...