Björn Leví Gunnarsson
Björn Leví Gunnarsson

Núna er að koma að því að taka þá ábyrgð og þið skuluð bera hana með ykkar lífi! Þú ert þjóðarmorðingi ásamt öllum öðrum þingfíflum. Þú valdir og núna eru skuldadagar að koma,“ – var sagt við mig fyrir stuttu á opinberum vettvangi (FB-hóp).

Þetta er ekki fyrsta hótunin sem ég hef fengið og verður örugglega ekki síðasta hótunin heldur. Ég veit að margir aðrir þingmenn hafa einnig fengið hótanir. Ástandið er orðið þannig að forsætisráðherra þarf orðið lögreglufylgd hvert sem hann fer.

Á Íslandi er skyri slett, eggjum hent og glimmeri dreift. Í Bandaríkjunum er skotið með riffli.

Höfum það algerlega á hreinu að þó einhver hendi glimmeri þýðir það alls ekki að sami aðili geti skotið af riffli. Þó hvort tveggja geti flokkast sem ofbeldi þá er himinn og haf þar á milli í alvarleika. Það er ekki hægt að

...

Höfundur: Björn Leví Gunnarsson