![Forysta Harpa Ósk Valgeirsdóttir skátahöfðingi Íslands og Kolbrún Ósk Pétursdóttir mótsstjóri.](/myndir/gagnasafn/2024/07/18/2bcd456c-5004-4647-b8c1-3f2bf379d36c.jpg)
Sigurður Bogi Sævarsson
sbs@mbl.is
Ætla má að um 2.500 manns verði í kvöld mætt að Úlfljótsvatni í Grafningi á hátíðarkvöldvöku á Landsmóti skáta. Mótið hófst síðasta föstudag og síðan þá hefur fjölgað jafnt og þétt á svæðinu. Börn og ungmenni á aldrinum 10-18 ára eru áberandi stærstur hluti mótsgesta, sem koma frá um 18 þjóðlöndum.
Íslendingar eru eðlilega mest áberandi á mótinu sem er þó í raun alþjóðlegt samfélag. Margir skátar til dæmis frá Hong Kong eru mættir á landsmót, en einnig fólk frá Noregi, Svíþjóð, Danmörku, Finnlandi, Úkraínu, Englandi, Wales og Lúxemborg svo nokkur lönd séu nefnd. Einnig er á mótinu stór hópur frá Kanada og af því tilefni mætir kanadíski sendiherrann á Íslandi á svæðið í dag sem og Guðni Th. Jóhannesson forseti Íslands.