![Danmörk Guðmundur Bragi Ástþórsson er orðinn atvinnumaður.](/myndir/gagnasafn/2024/07/18/65220a17-1b8c-4b08-99f3-abb3246eb07a.jpg)
Danmörk Guðmundur Bragi Ástþórsson er orðinn atvinnumaður.
— Morgunblaðið/Eggert
Handknattleiksmaðurinn Guðmundur Bragi Ástþórsson hefur gert tveggja ára samning við danska félagið Bjerringbro/Silkebro. Guðmundur fagnaði 22 ára afmæli sínu í gær.
Hann hefur verið einn besti leikmaður Hauka undanfarin tvö ár, en þar á undan gerði hann góða hluti sem lánsmaður hjá Aftureldingu. Guðmundur hefur leikið með yngri landsliðum Íslands undanfarin ár, en hann getur leikið sem miðjumaður og skytta.