Englendingurinn Daniel Brown er óvænt efstur eftir fyrsta hring Opna mótsins, fjórða og síðasta risamóts ársins í golfi. Leikið er í Troon í Skotlandi. Brown er að keppa á sínu fyrsta risamóti, en þrátt fyrir það lék hann fyrsta hringinn í gær á sex …
Forysta Daniel Brown er óvænt í forystu eftir sinn fyrsta hring á risamóti á ferlinum en hann lék á sex höggum undir pari í Troon í Skotlandi í gær.
Forysta Daniel Brown er óvænt í forystu eftir sinn fyrsta hring á risamóti á ferlinum en hann lék á sex höggum undir pari í Troon í Skotlandi í gær. — AFP/Andy Buchanan

Englendingurinn Daniel Brown er óvænt efstur eftir fyrsta hring Opna mótsins, fjórða og síðasta risamóts ársins í golfi. Leikið er í Troon í Skotlandi.

Brown er að keppa á sínu fyrsta risamóti, en þrátt fyrir það lék hann fyrsta hringinn í gær á sex höggum undir pari og er einu höggi á undan Íranum Shane Lowry.

Brown, sem er 29 ára, vann sér inn keppnisrétt á Evrópumótaröðinni á síðasta ári. Hann hefur aðeins unnið eitt mót á sterkustu mótaröð álfunnar. Árið 2018 var hann á Áskorendamótaröðinni, sem er einu þrepi neðar en Evrópumótaröðin, og í vandræðum með að komast í gegnum niðurskurðinn. Nú er sagan önnur.

Lowry er öllu þekktari en hann vann Opna mótið árið 2019 og hefur endað í fjórum efstu sætunum á öllum fjórum risamótunum. Justin Thomas frá Bandaríkjunum

...