Úrskurðarnefnd umhverfis- og auðlindamála hefur hafnað kröfu húsfélags eigenda íbúða á Klapparstíg 1, 1a, 3, 5, 5a og 7, auk Skúlagötu 10, um ógildingu á breytingu á deiliskipulagi á svæði á milli Sæbrautar og Skúlagötu þar sem komið hefur verið fyrir skiptistöð strætisvagna.

Kærendur töldu hagsmuni 121 íbúðar undir í þessu máli, vegna ónæðis sem skiptistöðinni myndi fylgja vegna aukinnar umferðar, hávaða og loftmengunar. Taldi húsfélagið að sú breyting á deiliskipulagi sem opnaði á skiptistöðina væri ekki í samræmi við aðalskipulag Reykjavíkur þar sem reiturinn sem stöðin stendur á sé skilgreindur fyrir skrifstofur og blandaða miðborgarbyggð.

Reykjavíkurborg hélt

...