„Ég er að bíða eftir að Guinness heyri í mér,“ segir tónlistarmaðurinn Birgir glettinn en hann gaf nýlega út stuttskífuna Undanfarið sem hann samdi, tók upp og gaf út á aðeins tveimur vikum
— Ljósmynd/Mummi Lu

„Ég er að bíða eftir að Guinness heyri í mér,“ segir tónlistarmaðurinn Birgir glettinn en hann gaf nýlega út stuttskífuna Undanfarið sem hann samdi, tók upp og gaf út á aðeins tveimur vikum. Birgir útskýrir að sjaldgæft sé að gefa út plötu svona skömmu eftir að hún er samin.

Nefnir hann að hann sé með aðra plötu í bígerð en hún hafi verið unnin á tæpum tveimur árum og verði ekki gefin út fyrr en eftir ár. Þau Kristín Sif og Þór Bæring tóku viðtal við tónlistarmanninn Birgi Stein Stefánsson á dögunum. Heyra má viðtalið í heild á k100.is