Evlalía Kristín Guðmundsdóttir (Edda) fæddist 21. desember 1935. Hún lést 8. júlí 2024. Útför hennar fór fram 18. júlí 2024.

Elsku ljúfasta amma Edda. Mikið vorum við heppin að hafa þig svona lengi hjá okkur, samt er ég ekki tilbúin að kveðja. Frá því þú lokaðir augunum, svo friðsællega inn í svefninn langa, hef ég verið hálfmáttlaus af söknuði. En að sakna þýðir að maður hefur elskað og þar varst þú fyrirmynd okkar barnabarnanna. Kærleikskonan okkar.

Þú varst góð í gegn, dæmdir ekki og komst fallega fram við alla. Þú kunnir svo vel að sýna öðrum samkennd og snertir við fólki með nærveru þinni og hlýju. Ástin milli þín og afa var sönn og hrein og eftir hans dag talaðir þú oft við myndina af honum á stofuborðinu, líkt og hann sæti þarna hjá þér. Þegar ég hugsa til baka koma upp óteljandi æskuminningar á heimili ykkar afa í Lækjarásnum og það var

...