Knattspyrnumaðurinn Orri Steinn Óskarsson hefur skrifað undir nýjan fjögurra ára samning við danska stórfélagið FC Köbenhavn. Orri er 19 ára gamall landsliðsmaður sem kom til FCK kornungur eða 15 ára árið 2019. Orri skoraði 10 mörk í 27 leikjum í deild með FCK í fyrra og 15 í 41 leik í öllum keppnum.

Knattspyrnumarkvörðurinn Jökull Andrésson er kominn aftur í uppeldisfélagið Aftureldingu að láni frá Reading á Englandi. Afturelding leikur í 1. deildinni. Jökull fór til Englands árið 2017 frá Aftureldingu áður en hann spilaði meistaraflokksleik með liðinu. Hann á einn vináttuleik með íslenska A-landsliðinu, gegn Úganda árið 2022.

Knattspyrnumaðurinn Dagur Dan Þórhallsson hefur framlengt samning sinn við bandaríska félagið Orlando City og gildir nýr samningur til ársloka 2026, eða í

...