REA
REA

Annar Mysingur sumarsins fer fram í mjólkurporti Listasafnsins á Akureyri í dag kl. 17 og koma þar fram REA og The Cult Of One. Tónleikaröðin er hluti af Listasumri og unnin í samstarfi Akureyrarbæjar, Listasafnsins á Akureyri, Ketilkaffis og Geimstofunnar. „REA er tónlistarkona frá Sviss sem semur og spilar tilraunakennda popp- og listatónlist. The Cult Of One er eins manns hljómsveit Henriks Björnssonar. Henrik spilar kraftmikið bílskúrsrokk,“ segir í kynningu. Aðgangur er ókeypis.