Óskar Þór Sigurðsson fæddist 25. janúar 1930. Hann lést 9. júlí 2024. Útför fór fram 18. júlí 2024.

Þá er elsku Óskar frændi farinn í Sumarlandið 94 ára. Það er margt sem fer í gegnum hugann á þessum tímamótum þegar allt þetta fólk er að kveðja okkar jarðvist. Lífið heldur áfram, nú hittast þau systkin aftur en mamma mín dó fyrir einu og hálfu ári, ekki langt á milli þeirra systkina. Minningarnar hrúgast í gegnum hugann, allar útilegurnar þegar við vorum krakkar, aðfangadagur á Grænó, jóladagur á Kirkjó dásamlegar stundir. Óskar hélt alltaf upp á afmælið sitt en þau systkin voru mikil afmælisbörn. Nú síðast hélt hann heljarveislu heima fyrir afkomendur og við systkin mættum auðvitað í afmælið. Fjölskyldurnar voru alltaf eins og ein fjölskylda, þau voru sex systkinin á Grænó og við fjögur á Kirkjó og öll á svipuðum aldri. Og eðlilega mikil samgangur.

...