Gættu að þér, lagsi! hrópaði ég yfir hafið. Í guðanna bænum gættu að þér!

Pistill

Orri Páll Ormarsson

orri@mbl.is

Ég er steinhættur að pissa í skálar á almenningssalernum. Steinhættur. Þá ákvörðun tók ég á mánudagskvöldið var. Ég var að vísu ekki staddur á almenningssalerni, heldur bara afslappaður heima í leðurstólnum á sveitasetri mínu – fyrir framan sjónvarpið. Þann mergjaða miðil.

Á skjánum var nýr breskur spennuþáttur – ég hef blæti fyrir þeim – Coma, ellegar Djúpsvefn eða Dá. Tveir menn voru að ræða málin á ölstofu og þriðji maðurinn, sem þeir voru að virða fyrir sér, brá sér á klósettið til að pissa í þar til gerða skál. Myndavélin fyrir aftan hann og til hliðar. Skotið til þess að gera vítt. Hvað segir það okkur? Jú, voðinn er vís. Fyrst kom annar af hinum mönnunum tveimur inn. Spennan magnaðist. Hann var

...