Miss Fallaci er glæný þáttaröð, framleidd af Paramount, sem sýnd verður í Sjónvarpi Símans Premium. Fyrsti þátturinn verður sýndur mánudaginn 22. júlí og síðan verða vikulegar sýningar. Þættirnir, sem eru alls átta, hafa ekki enn verið sýndir í ítölsku sjónvarpi, en munu vafalaust vekja athygli þar í landi þar sem minning Fallaci er höfð í heiðri.
Ítalska leikkonan Miriam Leone fer með hlutverk Fallaci. Þess má geta að Jóhannes Haukur leikur Orson Welles í þáttunum og er kynntur til leiks í öðrum þætti þegar Fallaci er komin til Hollywood.
Oriana Fallaci var ítalskur heimsfrægur blaðamaður, fædd árið 1929. Á árum seinna stríðs var hún í ítölsku andspyrnuhreyfingunni, þá unglingur, og varð seinna stríðsfréttamaður.
Á löngum ferli tók
...