Ása Halldórsdóttir fæddist í Reykjavík 25. júlí 1959. Hún lést á heimili sínu 7. júlí 2024.

Foreldrar Ásu voru Arndís Ásgeirsdóttir húsmóðir, f. 13. september 1919, d. 26. desember 2006, og Halldór Erlendsson kennari, f. 16. mars 1919, d. 14. október 1975. Ása var yngst fimm systkina, hin eru: Hrafn Marinósson, f. 1938, d. 1986, Ásgeir, f. 1946, d. 2022, Sigríður, f. 1953, Erlendur, f. 1957.

Ása giftist 16. mars 1984 Þór Svendsen Björnssyni, f. 1. mars 1961. Börn þeirra eru: 1) Hrafnhildur Birna, f. 1986, unnusti hennar Björgvin Þór Björgvinsson, f. 1983, börn hans frá fyrra sambandi eru Mía og Nói. 2) Björn Jóhann, f. 1990. 3) Ásta Kristín, f. 1996.

Ása ólst upp í Mávahlíðinni nr. 41 í Reykjavík í húsi sem foreldrar hennar byggðu. Hún gekk fyrst í Ísaksskóla en kláraði barnanámið í

...