2 Schauffele með sigurverðlaunin.
2 Schauffele með sigurverðlaunin. — AFP/Andy Buchanan

Bandaríkjamaðurinn Xander Schauffele vann sinn annan sigur á risamóti á árinu og á ferlinum er hann bar sigur úr býtum á Opna breska meistaramótinu en leikið var á Troon-vellinum í Skotlandi. Hann vann einnig PGA-meistaramótið í Bandaríkjunum í maí. Schauffele lék hringina fjóra á Troon á samanlagt níu höggum undir pari.

Í öðru og þriðja sæti urðu Justin Rose frá Englandi og Billy Horschel frá Bandaríkjunum á sjö höggum undir pari. Thriston Lawrence frá Suður-Afríku varð fjórði á sex höggum undir pari.