Magnús Emilsson fæddist 1. maí 1954. Hann lést 22. júní 2024. Útförin fór fram 9. júlí 2024.

Nú er komið að kveðjustund þegar við kveðjum kæran vin Magnús Emilsson sem kvaddi þetta jarðlíf eftir stutta en snarpa baráttu við MND-sjúkdóminn. Magnús var einstakur maður, gæðablóð út í gegn sem aldrei sagði neitt neikvætt um nokkurn mann og var ávallt reiðubúinn að rétta fram hjálparhönd.

Við kynntumst Magnúsi fyrir 44 árum þegar Sigrún kynnti hann sem unnusta sinn. Margar minningar renna upp í hugarskoti okkar en við viljum halda þeim fyrir okkur því þeir sem þekktu hann vita hvaða mann hann hafði að geyma. Samt er vert að minnast þeirra stunda þegar við ferðuðumst saman hvort sem það var í tjaldferðalögum, fellihýsum eða á húsbílum en á þessum stundum leið honum vel að ógleymdum sumarbústaðaferðum okkar en þar vorum við ávallt velkomin. Að standa

...