![](/myndir/gagnasafn/2024/07/22/2725c0e8-f1e8-47ae-be21-505fb4f4fb84.jpg)
Guðrún Jóhanna Ólafsdóttir söngkona og gítarleikarinn Francisco Javier Jáuregui flytja íslensk og erlend lög sem tengjast konum á einn eða annan hátt á sumartónleikum Listasafns Sigurjóns Ólafssonar annað kvöld, þriðjudagskvöld, kl. 20.30. „Titill tónleikanna vísar í lagið „Hún er vorið“ eftir Hauk Tómasson við ljóð Matthíasar Johannessen. Sum lögin sem flutt verða eru samin af konum, önnur eru við ljóð eftir konur, sum eru samin um konur eða tileinkuð þeim,“ segir í viðburðarkynningu. Meðal laga á efnisskránni eru „Maríukvæði“ eftir Atla Heimi Sveinsson, „Þökk sé þessu lífi“ eftir Violetu Parra í þýðingu Þórarins Eldjárn, „Madrid“ eftir Ólöfu Arnalds og „Síðasti strætó fer korter í eitt“ eftir Guðrúnu og Francisco við sonnettu eftir Kristján Þórð Hrafnsson.