Höfundurinn Edward M. Hallowell er ADHD-sérfræðingur, metsöluhöfundur og TikTok-stjarna.
Höfundurinn Edward M. Hallowell er ADHD-sérfræðingur, metsöluhöfundur og TikTok-stjarna. — Ljósmynd/Rayon Richards

Stuttur listi yfir ADHD-eiginleika

Heldurðu að þú, eða einhver sem stendur þér nærri, gæti verið með ADHD? Ef þú ert með ADHD er líklegt að þú kannist við þetta:

•Hugsanir þínar þjóta áfram og staðnæmast sjaldan við eitthvað.

•Þú þolir ekki leiðindi; um leið og þér fer að leiðast ertu á bak og burt, í raun og veru eða andlega.

•Þú ert frumleg/ur og ferð eigin leiðir.

•Þér finnst eins og þú standir þig ekki nógu vel. Þú stendur þig kannski frábærlega en þér finnst að ef þú bara gætir fundið réttu leiðina gætirðu gert mun betur og haft minna fyrir því.

•Þú ert óþolinmóð/ur, þú hatar að

...