Limra eftir Benedikt Jóhannsson á Boðnarmiði: Þau fagna að foringinn gali þótt fólum í kringum sig smali, sjá, bara bíðið hann brátt endar stríðið með einungis einu símtali. Eyjólfur Ó. Eyjólfsson skrifar: Nú hefur leiðtoginn mikli Donald Trump…

Limra eftir Benedikt Jóhannsson á Boðnarmiði:

Þau fagna að foringinn gali

þótt fólum í kringum sig smali,

sjá, bara bíðið

hann brátt endar stríðið

með einungis einu símtali.

Eyjólfur Ó. Eyjólfsson skrifar: Nú hefur leiðtoginn mikli Donald Trump fengið byr í seglin svo um munar og hjálpa honum bæði guð og vondir menn:

Nú strjúka menn samúðar strengi

og styrkja svo öldungis gengi

þegar óhöppin ske.

Það er ótrúlegt hve

eyrað má blóðmjólka lengi.

Ingunn Björnsdóttir bætti við:

Að mjólka er máttugt atferli

má því samt sinna í erli.

...