![Veitingamaður Emil Bjartur var á vaktinni í portinu við Laugaveg 48 í gær. Þar skín sólin fram á kvöld að hans sögn.](/myndir/gagnasafn/2024/07/23/80558012-7b69-4dd5-af4a-28088c51920a.jpg)
Veitingamaður Emil Bjartur var á vaktinni í portinu við Laugaveg 48 í gær. Þar skín sólin fram á kvöld að hans sögn.
— Morgunblaðið/Eyþór
Höskuldur Daði Magnússon
hdm@mbl.is
Nýjasta viðbótin í veitingaflóruna í miðborg Reykjavíkur er pitsuvagninn Pizza Port sem er að finna við Laugaveg 48. Þar standa vaktina tveir ungir menn og reiða fram súrdeigspitsur sem bakaðar eru í Ooni-pitsaofnum sem notið hafa mikilla vinsælda síðustu misseri.
„Við fengum bullandi pitsudellu í covid. Okkur langaði alltaf að gera eitthvað svona saman og ákváðum síðasta sumar að kýla á það. Síðan þá höfum við unnið að undirbúningi og nú er þetta komið af stað,“ segir Emil Bjartur Sigurjónsson. Hann og félagi hans Eiríkur Atli Karlsson hafa haft í nógu að snúast síðan vagninn var opnaður fyrir mánuði.
Pitsurnar eru Napólí-pitsur úr súrdeigi og hægt er að velja úr nokkrum tegundum af matseðli. Athygli vekur
...