Reynir Brynjólfsson fæddist 27. apríl 1934 á Hellum á Vatnsleysuströnd. Hann lést á Heilbrigðisstofnun Suðurnesja 9. júlí 2024.

Foreldrar Reynis voru Brynjólfur Hólm Brynjólfsson, bóndi í Minna-Knarrarnesi á Vatnsleysuströnd, f. 6. janúar 1903, d. 14. október 1979, og Margrét Þórarinsdóttir, húsfreyja í Minna-Knarrarnesi á Vatnsleysuströnd, f. 9. febrúar 1911, d. 27. júlí 1995. Systkini Reynis voru Brynjólfur Gunnar, f. 6. febrúar 1930, d. 3. mars 2017. Þórarinn, f. 23. ágúst 1931, d. 27. maí 2005. Elísabet Guðrún, f. 31. janúar 1933, d. 10. desember 2016. Unnur Kristín Björg, f. 15. maí 1937, d. 8. mars 1981. Garðar, f. 12. júní 1939, d. 2. september 2012. Eina eftirlifandi systkin Reynis er Ólafía Sigríður, f. 28. febrúar 1936.

Eiginkona Reynis var Sæunn Sigríður Guðjónsdóttir, f. 3. júlí 1936 á Kambi á Ströndum. Sæunn lést á

...