Jón Smári Lárusson sendi mér góðan póst, stöku eftir Giljagaur, og verður mér hugsað vestur um haf:
Er hann skotið í sig fékk,
aðeins hafð'ann lægra.
Blóðugur svo burtu gekk,
með blaðstýft aftan hægra.
Hannes Sigurðsson segir, að „þeir ku vera farnir að nota fjármörk á pólitíkusa í Ameríkuhreppi“:
Nú tíðkast eyrnamörkin meðal frægra
og minna ber á skrauti og höfuð glingri,
meni um háls og djásni á digrum fingri.
– Í dag er tískan biti aftan hægra.
Hvort sem fylgir dýrðin eða dauði,
má dæma þegar bústofninn er talinn
hvort forystan sé vel úr flokki valin,
– en víst er skylt
...