Nýr fjölskylduvænn hraðhleðslugarður hefur verið opnaður í Öskjuhlíð. Þetta kemur fram í tilkynningu frá Orku náttúrunnar. Þar kemur sömuleiðis fram að hugmyndin með hleðslugarðinum sé sú að þar geti notendur átt ánægjulega stund á meðan bíllinn er í hleðslu
![Hleðsla Trampólín og bekkir eru í hleðslugarðinum.](/myndir/gagnasafn/2024/07/23/0f01c165-51b7-4fe0-84ea-4a78bb1d090f.jpg)
Hleðsla Trampólín og bekkir eru í hleðslugarðinum.
Elínborg Una Einarsdóttir
elinborg@mbl.is
Nýr fjölskylduvænn hraðhleðslugarður hefur verið opnaður í Öskjuhlíð. Þetta kemur fram í tilkynningu frá Orku náttúrunnar.
Þar kemur sömuleiðis fram að hugmyndin með hleðslugarðinum sé sú að þar geti notendur átt ánægjulega stund á meðan bíllinn er í hleðslu. Við stöðina er að finna trampólín, mylluspil og bekki til að sitja á. Sömuleiðis er athygli vakin á öðrum útivistarmöguleikum á svæðinu.
Þá segir að gott aðgengi hafi verið í fyrirrúmi við gerð hleðslugarðsins en þar er að finna tólf 240
...