![Hlíðarfjall Úrkomunni fylgdi snjókoma til fjalla í Eyjafirði.](/myndir/gagnasafn/2024/07/23/9b312ff9-d14d-494a-a2f7-a79135154a3e.jpg)
Hlíðarfjall Úrkomunni fylgdi snjókoma til fjalla í Eyjafirði.
— Ljósmynd/Auður Eva Ásberg
Úrhellisrigning var á Ströndum og Norðurlandi vestra í fyrrinótt, og var gul veðurviðvörun í gildi um nóttina. Féllu minnst tvær skriður í Skagafirði í gær vegna úrhellisins og féll sú fyrri á Reykjastrandarveg norðan við Sauðárkrók. Var vegurinn hreinsaður um morguninn.
„Þetta var þó nokkur skriða, kannski 15 til 20 metra breið,“ sagði Björn Sigurður Jónsson, bóndi á Fagranesi, við Morgunblaðið í gær, en skriðan féll úr Tindastóli og yfir Reykjastrandarveg.
Björn segir rigninguna hafa verið stöðuga síðasta sólarhring. Þá bárust einnig fregnir um að aurskriða hefði fallið við Ingveldarstaði í Hjaltadal, en ekki fengust nánari upplýsingar um þá aurskriðu í gær.
Fólk hafi augun hjá sér
Martina Stefani, sérfræðingur við ofanflóðahættumat hjá Veðurstofu Íslands, sagði
...