35 tarfar hafa verið felldir frá því að hreindýraveiðitímabilið hófst 15. júlí. Fyrsta sólarhringinn felldu veiðimenn 15 tarfa undir handleiðslu tíu leiðsögumanna. Almennt er mest veitt um helgar og heldur rólegra er á virkum dögum þó að veiði fari einnig eftir veðri. Nokkuð mikið var veitt á föstudag og laugardag þegar átta leiðsögumenn fóru með alls 17 veiðimenn á sex svæði. » 6