Bann Hermann Hreiðarsson ferðast ekki með ÍBV til Akureyrar.
Bann Hermann Hreiðarsson ferðast ekki með ÍBV til Akureyrar. — Ljósmynd/Sigfús Gunnar

Hermann Hreiðarsson, þjálfari karlaliðs ÍBV, verður í banni þegar ÍBV heimsækir Þór Akureyri í næstu umferð 1. deildarinnar í fótbolta á laugardaginn. Hermann var úrskurðaður í eins leiks bann vegna fjögurra gulra spjalda af aga- og úrskurðarnefnd KSÍ í dag. Þá verður Blikakonan Andrea Rut Bjarnadóttir og KA-maðurinn Hans Viktor Guðmundsson einnig í banni í næstu umferð vegna fjögurra gulra spjalda.