Anna Björk Kristjánsdóttir
Anna Björk Kristjánsdóttir

Knattspyrnukonan Anna Björk Kristjánsdóttir á von á barni ásamt kærasta sínum Róberti Steinari Hjálmarssyni rétt eftir áramót og verður því ekki meira með knattspyrnuliði Vals. Anna greindir frá stóru tíðindunum í gær en hún hefur ekkert spilað með Val síðan í lok síðasta mánaðar. Anna Björk, sem er fædd árið 1989, er þaulreynd fótboltakona sem hefur verið í lykilhlutverki hjá Val síðan hún gekk í raðir félagsins síðasta sumar frá stórliði Inter Mílanó á Ítalíu. Þá á hún að baki 45 landsleiki fyrir Íslands hönd.